13.11.2018
Afrekssjóður Akureyrar auglýsir eftir umsóknum í sjóðinn fyrir árið 2018.
02.10.2018
Haraldur Sigurðsson, heiðursfélagi ÍBA, KA, FRÍ og ÍSÍ er látinn 93 ára að aldri.
11.09.2018
Skráning er hafin í haustfjarnám 1. 2. og 3. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ sem hefst mánudaginn 24. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.
07.06.2018
Sumarfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 18. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
17.05.2018
Flest íþróttafólk á sér þann draum að verða best í sinni íþrótt og setja sér það markmið í æsku að verða atvinnumaður í íþróttinni sem þau elska. Því miður eru margir iðkendur sem ná ekki að upplifa sinn draum eða ná ekki sínu markmiði og hvað er þá til ráða?
11.05.2018
\"Hlauptu hraðar! Kastaðu lengra!\" Er ég á vellinum sem pabbi eða keppnismaður? Erum við að drekkja börnunum okkar í upplýsingum? Foreldrar vilja að barninu sínu gangi vel í sinni íþróttaiðkun. Þeir kalla leiðbeiningar inn á völlinn. En er til önnur leið til þess að hvetja barnið sitt áfram? Í grein Þórarins Alvars á síðu Sýnum karakter koma fram ýmsar hugmyndir um hlutverk foreldra barna í íþróttum.
08.05.2018
Glæsilegur árangur náðist hjá Sóley Margrét Jónsdóttir úr KFA þegar hún varði Evrópumeistaratitilinn í U18 með nýju Evrópumeti í Pilsen í Tékklandi.
07.05.2018
Nóg er um að vera á Akureyri á iði yfir allan maímánuð. Vorið er tíminn og við skulum samgleðjast hækkandi sól og taka þátt í gleðinni sem Akureyri á iði hefur uppá að bjóða.
01.05.2018
Sunnudaginn 6. maí milli kl. 13 og 17 verður ÍBA og Kraftur með perluviðburð í Íþróttahöllinni Akureyri og eru allir Akureyringar hvattir til að koma og leggja hönd á plóg.
30.04.2018
Nú styttist í að vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2018 hefjist í sextánda sinn en að þessu sinni fer keppnin fram frá 2. - 22. maí.
Opnað var fyrir skráningu þann 18. apríl sl. og við hvetjum alla til að skrá sig strax til leiks.