Vinsamlega vandið tilnefninguna og munið að láta umbeðin fylgigögn fylgja með. Íþróttamaður ársins skal valinn eftir árangri í íþróttagrein sinni og framkomu jafnt í keppni sem utan. Æskilegt er að aðildarfélög tilnefni bæði íþróttakarl og íþróttakonu. Hafi margir aðilar innan félags náð framúrskarandi árangri og verið til fyrirmyndar í sinni grein mega félögin senda inn fleiri tilnefningar.