Málefni stjórnar:
Siðareglur ÍBA kynntar af siðareglunefnd.
-Helgi og Viðar þakka nefnd samstarfið og vel unnin störf á skömmum tíma.
-Farið yfir siðareglur, viðbragðsáætlun og hegðunarviðmið - geta nýst aðildarfélögum við að búa til eigin reglur eða við endurskoðun reglna/viðmiða.
-Nefndin leggur til að stofnuð verði siðanefnd eða fagráð innan ÍBA sem endurmeti ofangreint árlega og jafnvel geti komið að erfiðari málum.
-Formaður veltir upp möguleika á að ÍBA komi að kostun veggspjalda fyrir öll aðildarfélög. Því velt upp hvort það eigi við um reglur ÍBA eða hvort félögin geti haft sínar eigin reglur. Umræðu frestað.
-Ofangreint verður lagt fyrir formannafund til kynningar. Er það ósk siðanefndar að þar verði einnig ákveðin/samin gildi ÍBA.
-Hugmyndir um vinnureglur vegna ráðninga félaga á vegum ÍBA kynntar fyrir stjórn.
Afrekssjóður Akureyrar leggur til nýja reglugerð sjóðsins
-Nýjar reglur um Afrekssjóð kynntar, samlegðaráhrif með Íþróttamaður Akureyrar aukin til muna.
-Lagðar fram tillögur að nýjum reglum reglum um Íþróttamann Akureyrar, til samræmingar við reglur Afrekssjóða.
-Hvort tveggja regluverk verður lagt fyrir formannafund til kynningar.
Frístundaráð óskar eftir því við ÍBA að gerðar verði reglur um úthlutun fjármagns vegna húsaleigu hjá 3ja aðila til framtíðar.
-Staða þeirra félaga sem undir þennan lið fall rædd, t.d. Hvað varðar skilyrði um unglingastarf, óskorað aðgengi að aðstöðu og kröfur um gerð húsnæðis.
-Leita þarf álits frá ÍBR og ÍBH.
-Málinu frestað til næsta fundar.
Ársreikningur ÍBA 2018 lagður til kynningar og samþykktar.
-Skekkja varðandi styrki hefur verið leiðrétt.
-Reglur um skattskil varðandi styrki ræddar.
-Lokafrágangi og samþykkkt frestað til næsta fundar.
Dagskrá formannafundar ÍBA
-Áætlaður miðv. 10. apríl kl. 17-19.
-Dagskrá fundar rædd og samþykkt.
Innsent erindi:
Þór óskar eftir nýrri aðstöðu fyrir píludeild Þórs
Hugsanleg nýting Laugargötu við flutninga júdódeildar KA tekin til skoðunar
Önnur mál:
Afhending stjórnarkorta á íþróttamót Ak. (Helgi)
Framkvæmdastjóri dreifir kortum.
Undirskrift á afturköllun umboðs ÞEL (Helgi)
Frágengið.
Kynning á fræðslufundi ÍSÍ um persónuverndarlög (Ómar)
Falið framkvæmdastjóra og Ómari til frekar undirbúnings.
Aðalfundur Sundfélag Óðins 10. apríl kl. 19:30 í Teríu-Höllinni (Helgi)
Formaður verður fulltrúi ÍBA á fundinum.
Kaup á nýjum skjávarpa? (Helgi)
Eldri skjávarpi er til en ónothæfur í þeirri aðstöðu sem ÍBA er að nota, t.d. Teríunni. Skoðað var tilboð á hentugum skjávarpa, Helga falið að klára málið. Einnig lagði formaður til að skoðað yrði í leiðinni með hentuga færanlega hátalara. Helgi skoðar það mál einnig.
Íþróttaþing ÍSÍ 3.-4. maí nk. 5 fulltrúar (Helgi)
Fjórir fulltrúar stjórnar auk fulltrúa frá KA eða Þór. Helgi kannar áhuga varðandi það.
Hrafnhildur segir stjórn af aðalfundi Bocciafélags Akureyrar