Íþróttavika Evrópu kláraðist formlega í gær

Í gær kláraðist Íþróttavika Evrópu formlega hjá okkur hjá ÍBA þar sem haldinn var frábær fyrirlestur tengt næringu fyrir heilsu og árangur íþróttafólks. Fyrirlesturinn var haldinn í hátíðarsal Háskólans á Akureyri í samstarfi við Akureyrarbæ, ÍSÍ og HA. Til þess að góður árangur náist í íþróttum þurfa margir þættir að spila saman en hollt mataræði, næg vatnsdrykkja og reglulegar máltíðir yfir daginn er jafn mikilvægt samspil og æfingarnar sjálfar og nægur svefn. Oft vefst þetta fyrir íþróttafólki og því fengum við Birnu Varðardóttur í lið með okkur sem hélt tvo fyrirlestra, annars vegar fyrir ungt íþróttafólk og hins vegar fyrir foreldra og fengum nokkur góð ráð sem hægt er að nýta. Birna hefur rannsakað næringarástand íþróttafólks og tengdar áskoranir í fjölda ára. Birna er í doktorsnámi og er einmitt að fara að verja verkefni sitt í næstu viku, hún er með Bsc í næringarfræði og MS í íþróttanæringarfræði og hreyfivísindum. Hún heldur úti Instagram síðunni "Sportbitarnir". 

Mætingin var framar vonum en við troðfylltum hátíðarsal Háskólans þegar rúmlega 200 ungmenni mættu til að hlusta og fræðast og síðan mættu um 140 foreldrar í kjölfarið. Greinilega þarft málefni að taka fyrir. 

Við hjá ÍBA þökkum öllum fyrir komuna á fyrirlesturinn, Birnu fyrir frábæra fræðslu, öllum aðildarfélögunum okkar fyrir að taka þátt í Íþróttavikunni með okkur og halda viðburði víða um bæinn og öllum þeim sem mættu og nýttu sér það að hreyfa sig með okkur.