Fjölbreytt
dagskrá og flottir viðburðir í Íþróttaviku Evrópu í boði ÍBA og aðildarfélaga.
Frítt er á alla viðburðina.
Endilega skoðið dagskrána, hreyfum okkur saman með fjölskyldu og vinum og nýtum tækifærið og prufum nýjar íþróttir.
Endum svo vikuna á að fræðast um næringu ungs íþróttafólks í boði ÍBA, Akureyrarbæjar, ÍSÍ og HA.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Háskólanum á Akureyri.
Aðildarfélög ÍBA, þjálfarar, iðkendur og bæjarbúar allir eru hvattir sérstaklega til að ganga eða hjóla til og frá vinnu og skóla þessa viku.
Hvetjum fólk á öllum aldri að kíkja hvað er í boði hjá
aðildarfélögum ÍBA og prufa æfingar hjá félögunum þessa viku.