Íþróttaeldhugi ársins 2024

Lottó og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir tilnefningu á Íþróttaeldhuga ársins 2024 sem verður tilnendur í þriðja sinn samhliða lýsingu á kjöri Íþróttamanns ársins 2024.

Almenningi gefst kostur á að senda inn ábendingar um öfluga sjálfboðaliða til 5. desember á heimasíðu ÍSÍ. Leitað er eftir framúrskarandi sjálfboðaliðum sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarf, t.d. með því að vinna að framkvæmd móta/leikja, safna fjármunum, bæta aðstöðu, sitja í stjórnum eða auka þátttöku hvar á landinu sem er. Opnað hefur verið fyrir ábendingar en rétt er að geta þess að launað starfsfólk íþróttahreyfingarinnar kemur ekki til greina.

Sérstök valnefnd hefur verið skipuð sem fer yfir innsendar tilnefningar, velja þrjá aðila og taka lokaákvörðun um hver hlýtur titilinn Íþróttaeldhugi ársins 2024. Íþróttaeldhugi ársins 2024 fær síðan afhentan glæsilegan verðlaunagrip frá Lottó.

Þess má geta að fyrsti Íþróttaeldhugi ársins sem krýndur var í janúar 2023 kemur úr röðum aðildarfélags ÍBA en það var hann Haraldur Ingólfsson sem hefur unnið afar mikilvægt og óeigingjarnt starf fyrir Íþróttafélagið Þór og einnig fyrir kvennalið Þórs/KA í knattspyrnu.