Íslandsleikarnir á Selfossi 29.-30. mars - Allir með

Íslandsleikarnir verða haldnir á Selfossi dagana 29. -30. mars 2025. Leikarnir eru fyrir þá sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi og/eða eru með stuðningsþarfir.

Á leikunum er keppt í fimm íþróttakreinum fótbolta, körfubolta, handbolta, fimleikum og frjálsum. Einnig verða opnar æfingar í þessum sömu greinum sem öllum er frjálst að mæta í.

Hægt er að skrá lið en einstaklingar geta líka skráð sig og verða þá settír í lið. Leikarnir eru fyrir iðkendur á öllum aldri.

Gisting í boði í skólastofum föstudags- og laugardagskvöld.

Þátttökugjald kr. 5.000 (mótsgjald, gisting, morgunmatur, hádegismatur, bolur, pitsuveisla)

Skráning opnar 1. mars og fer fram í gegnum Abler. 

Nánari upplýsingar á heimasíðu Allir með

Sundlaugaparty, leikir og fleira

Leikarnir eru samstarfsverkefni Allir með, Ungmennafélags Selfoss, Selfoss körfubolta og Árborgar.