Afrekssjóður Akureyrarbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna sjóðshlúthlutunar afreksíþróttaefna og landsliðskeppnisferða fyrir árið 2024. Markmið sjóðsins er að styrkja akureyrsk afreksíþróttaefni, á sextánda aldursári eða eldri (f. 2008 og fyrr), sem skara framúr í sinni íþróttagrein innan aðildarfélaga ÍBA og talin eru með markvissri þjálfun geta skipað sér á bekk með þeim bestu á landsvísu.
Ennfremur er afreksíþróttafólk og afreksefni styrkt vegna ferðakostnaðar landsliðskeppnisferða erlendis á vegum sérsambanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), að hámarki tvær ferðir á ári.
Reglugerð afrekssjóðs Akureyrarbæjar má finna hér:
Reglugerð Afrekssjóðs Akureyrarbæjar
Rafrænir umsóknarferlar eru inná heimasíðu ÍBA:
Umsóknarfrestur afreksefna er til og með 1. desember en vegna ferðastyrkja landsliðskeppnisferða til 31. desember 2024.