Auglýsir eftir umsóknum afreksíþróttaefna í sjóðsúthlutun fyrir árið 2020. Markmið sjóðsins er að styrkja akureyrsk afreksíþróttasefni, á sextánda aldursári eða eldri, sem talin eru með markvissri þjálfun geta skipað sér á bekk með þeim bestu á landsvísu.
Ennfremur er afreksíþróttafólk og afreksefni styrkt vegna ferðakostnaðar landsliðskeppnisferða erlendis á vegum sérsambanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), að hámarki tvær ferðir á ári.
Reglugerð afrekssjóðs Akureyrarbæjar má finna hér:
Samþykkt Afrekssjóðs Akureyrarbæjar
Rafrænar umsóknir afreksefna má finna á eftirfarandi vefslóð:
Umsóknir vegna afreksefna 2020
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2020.