66. ársþing ÍBA og nýr formaður kjörinn

Jóna Jónsdóttir formaður ÍBA og Geir Kristinn Aðalsteinsson fráfarandi formaður ÍBA að loknu þingi.
Jóna Jónsdóttir formaður ÍBA og Geir Kristinn Aðalsteinsson fráfarandi formaður ÍBA að loknu þingi.

66. ársþing ÍBA var haldið hátíðlegt á Jaðri í Golfskálanum á Akureyri síðastliðinn þriðjudag, 16.apríl. Þing ÍBA fer með æðstu stjórn ÍBA og er haldið annað hvert ár. Rétt tæplega 30 þingfulltrúar frá 11 aðildarfélögum ÍBA af 20 mættu til þingsins að þessu sinni sem er því miður ekki nema rétt rúm 30% mæting af þeim þingfulltrúum sem áttu sæti á þinginu.

Þingforseti var líkt og oft áður Ingvar Már Gíslason sem stýrði þinginu af miklu öryggi eins og hans er von og vísa. Geir Kristinn Aðalsteinsson formaður fór yfir skýrslu stjórnar og Jón Steindór Árnason gjaldkeri fór yfir ársreikninga og fjárhagsáætlun félagsins sem var samþykkt á þinginu. Fáar tillögur lágu fyrir þinginu að þessu sinni og engar lagabreytingar lágu fyrir, en tillögur voru tvær líkt, þakkar- og hvatningartillaga ÍBA sem voru báðar samþykktar.

Ný stjórn var kosin þar sem Geir Kristinn Aðalsteinsson og Ómar Kristinsson gengu úr stjórn eftir margra ára setu, Geir eftir 10 ár í formannsstólnum og Ómar sem meðstjórnandi í 4 ár. Geir Kristinn var heiðraður bæði af fulltrúum ÍSÍ og UMFÍ á þinginu fyrir störf sín í þágu íþrótta í landinu og var honum veitt gullmerki beggja samtaka. Auk þess hlaut hann gullmerki ÍBA fyrir hans óeigingjarna framlag til bandalagsins og í garð íþrótta á Akureyri síðustu ár. Ómar hlaut silfurmerki bandalagsins fyrir sín störf. Jóna Jónsdóttir var kjörin nýr formaður bandalagsins og nýir inn í stjórn eru þeir Alfreð Birgisson og Ásgeir Örn Blöndal.

Stjórn ÍBA er því þannig skipuð eftir þingið. Jóna Jónsdóttir formaður, Birna Baldursdóttir varaformaður, Jón Steindór Árnason gjaldkeri,  Sigrúnu Árnadóttir ritari og Alfreð Birgisson meðstjórnandi. Varamenn í stjórn eru Ásgeir Örn Blöndal og María Aldís Sverrisdóttir. 

Þess má því til gamans geta að með æðstu stjórn ÍBA fara þrjár konur þar sem formaður og varaformaður eru konur og framkvæmdastjóri bandalagsins einnig. 

Á þinginu voru einnig heiðraðir Guðmundur Bjarnar Guðmundsson og Sveinn Torfi Pálsson sem hafa verið skoðunarmenn reikninga ÍBA síðan 2008 og hlutu þeir silfurmerki ÍBA fyrir störf sín. Ingvar þingforseti Gíslason hlaut gullmerki ÍBA. Hann hefur hefur setið í nefndum á vegum bandalagsins, hefur stýrt íþróttahátíðinni okkar í Hofi þegar við krýnum íþróttafólk ársins og svo hefur hann verið þingforseti á þingum ÍBA í ansi mörg ár. Og að lokum hlaut Skapti Hallgrímsson gullmerki ÍBA fyrir hans framlag til íþrótta á Akureyri og þá ekki síst fyrir mikla og góða fjölmiðlaumfjöllun um íþróttalífið í bænum og þær fjölmörgu myndir sem hann hefur tekið af íþróttafólkinu okkar. Þökkum þeim öllum fyrir þeirra framlag til íþrótta í bænum okkar.

Hulda Mýrdal stofnandi og eigandi Heimavallarins var með frábæran og mjög áhugaverðan fyrirlestur á þinginu sem kom inná stelpur og fótbolta þar sem hún vildi sýna að fótbolti og í raun íþróttir í heild sinni er fyrir okkur öll og draumar geta ræst, líka þegar þú ert #dóttir, því það skiptir máli að eiga fjölbreyttar fyrirmyndir. Draumur stofnenda Heimavallarins er að viðhorf munu breytast og leikurinn muni stækka til framtíðar.  

Fulltrúar ÍSÍ á þinginu voru þeir Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ og Viðar Sigurjónsson sérfræðingur á stjórnsýslusviði og fulltrúi UMFÍ var Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri UMFÍ.

Gögn þingsins og fleiri myndir frá þinginu koma inná heimasíðu ÍBA á næstu dögum.